Kolsvört kómedía

Steinar Sigurjónsson var sérstæður rithöfundur, það gerir sýning Lab Loka í Hafnarfjarðarleikhúsinu á Steinari í djúpinu (eða Steinum í djúpinu) jafnljóst og verða má. Leikverkið er byggt „á skáldheimi Steinars Sigurjónssonar“, eins og segir í leikskrá, aðallega verkunum Blandað í svartan dauðann, Skipin sigla og Djúpinu.

Leikstjóri og handritshöfundur er Rúnar Guðbrandsson og hann hefur fengið algert topplið með sér á alla pósta. Tónlistinni sem skipar veglegan sess í sýningunni stýrir klarínettséníið Guðni Franzson og hefur með sér snillingana Bryndísi Höllu Gylfadóttur á selló og Daníel Þorsteinsson á píanó. Leikmyndina sem gefur til kynna bæði fátækleg húsakynni í sjávarþorpi um miðja síðustu öld og skipin sem karlarnir sigla á gerir Móeiður Helgadóttir, afkáraleg gervin og dæmalausa búningana sjá þær um Myrra Leifsdóttir og Ásta Hafþórsdóttir og lýsingunni sem stundum var hreint ævintýraleg stýrði Garðar Borgþórsson.

Halda áfram að lesa: Kolsvört kómedía

Nýtt verk: Steinar í djúpinu.

Steinar SigurjónssonÍ nóvember mun Lab Loki frumsýna verkið Steinar í djúpinu, í Hafnarfjarðarleikhúsinu. Þetta er nýtt íslenskt leikverk, byggt á skáldheimi Steinars Sigurjónssonar, aka: Bugði Beygluson, Steinar á Sandi, Sjóni Sands o.s.frv.

Hér er ekki um að ræða leikgerð á einu tilteknu verki eftir hann, heldur sjálfstætt leikhúsverk sem sækir innblástur í allt hans höfundarverk og að hluta til í ævi hans og örlög.

Verkið er vegferð um „kvasseggjað grjót“, ferðalag um sagnaheim Steinars; um þorpið þar sem lúin þil lykta af hlandi og svita og fullir dusar blanda í svartan dauðann; um ægifegurðir og erkiljótleika djúpsins sem er ægilegt. Jafn heillandi og skelfíngin sem á móti vegur. Tónlist kemur hér mjög við sögu, takturinn í tungutakinu, músikin í málnotkuninni og knéfiðlan og slagharpan eru sjaldan langt undan, enda tekur ferðalagið mið af sónötunni.

Sónatan hentar kynjaheimi Steinars vel, til þess að ná utan um alla þá óreiðu og þær andstæður sem þar birtast, brjálið og kyrrðina, harminn og ískaldan húmorinn.

Rúnar Guðbrandsson mun leikstýra hópnum sem glímir við að holdgera og andsetja texta Steinars við tónlist Guðna Franssonar. Móeiður Helgadóttir hefur yfirumsjón með útliti sýningarinnar, en meðal leikara eru: Árni Pétur Guðjónsson, Birna Hafstein, Erling Jóhannesson, Gunnar Eyjólfsson, Harpa Arnardóttir, Hjalti Rögnvaldsson, Karl Guðmundsson, Ólafur Darri Ólafsson, Steinunn Knútsdóttir og Tómas Lemarquis.