Ufsagrýlur — Nýtt leikrit eftir Sjón
12.02.10 | Ufsagrýlur | 0 svör »Frumsýnt í Hafnarfjarðarleikhúsinu, janúar 2010.
Góðu dagarnir sundruðu sálinni, afskræmdu líkamann, þurrkuðu út mörkin milli manna og drýsla. Á leynilegri sjúkrastofnun hefst endurhæfingin, leitin að nýrri manneskju með heilbrigða sál í hraustum líkama. En það getur verið erfitt að venja sig af gulláti og saurugum hugsunum, og ekki er víst að alltaf búi flagð undir fögru skinni – eða öfugt.
Hafið samband við Snorra ljósmyndara (GSM 847 3001 / snorri@snorrigunnarsson.com) ef ykkur vantar myndir af sýningunni!









































































































